Hvað er safnaráð?

Í maí 2001 voru samþykkt ný safnalög, nr. 106/2001.  Í samræmi við ákvæði safnalaga var fyrst skipað safnaráð til fjögurra ára þann 15. september 2001.  Safnaráð er fjölskipað stjórnvald og stjórnsýslunefnd sem m.a. hefur því hlutverki að gegna að úthluta styrkjum úr safnasjóði til byggða- og minjasafna, listasafna og náttúruminjasafna. Mennta- og menningarmálaráðherra skipar Safnaráð til fjögurra ára í senn. Safnaráð er í dag skipað til 1. nóvember 2013 að óbreyttum lögum.

Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefnir einn fulltrúa auk varamanns og Félag íslenskra safna og safnmanna einn fulltrúa auk varamanns. Auk þeirra eru forstöðumenn höfuðsafna lögbundnir fulltrúar í ráðinu og tilnefna þeir sína varamenn.  Höfuðsöfn eru Þjóðminjasafn Íslands á sviði þjóðminjavörslu, Listasafn Íslands á sviði myndlistar og Náttúruminjasafn Íslands á sviði náttúrufræða en Náttúrufræðistofnun Íslands gegndi hlutverki þess tímabundið þar til safnið var stofnað með lögum nr. 35 árið 2007.  Mennta- og menningarmálaráðherra skipar formann og varaformann úr hópi ráðsmanna. Safnaráð er samráðsvettvangur starfsemi lista- og minjasafna og hefur eftirlit með söfnum sem hljóta ríkisstyrki.


Safnaráð skipa nú eftirtaldir:
 

AÐALFULLTRÚAR:          VARAFULLTRÚAR
Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður,  lögbundinn aðalfulltrúi höfuðsafns á sviði menningarminja frá 15. september 2001. Formaður safnaráðs frá 1. mars 2007 - 1. nóvember 2013. Varaformaður safnaráðs frá 1. nóvember 2005 - 28. febrúar 2007. (Einnig formaður safnaráðs 15. september 2001 - 19. janúar 2004).

Anna Guðný Ásgeirsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs Þjóðminjasafns Íslands, tilnefndur varafulltrúi höfuðsafns á sviði menningarminja frá 15. september 2001.


Halldór Björn Runólfsson
, safnstjóri Listasafns Íslands, lögbundinn aðalfulltrúi höfuðsafns á sviði lista frá 1. mars 2007 - 1. nóvember 2009. Varaformaður safnaráðs frá 14. mars 2008 - 1. nóvember 2013.

Svanfríður Franklínsdóttir, deildarstjóri kynningar- og útgáfudeildar Listasafns Íslands, tilnefndur varafulltrúi höfuðsafns á sviði lista frá 25. nóvember 2009 - 1. nóvember 2013.


Helgi Torfason
, forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands, lögbundinn aðalfulltrúi höfuðsafns á sviði náttúruminja frá 1. júní 2007 - 1. nóvember 2013.

    
Georg Friðriksson, starfsmaður Náttúruminjasafns Íslands, tilnefndur varafulltrúi höfuðsafns á sviði náttúruminja frá 25. nóvember 2009 - 1. nóvember 2013.

Guðný Dóra Gestsdóttir
, forstöðumaður Gljúfrasteins - húss skáldsins, tilnefndur aðalfulltrúi Félags íslenskra safna og safnmanna frá 25. nóvember 2009 - 1. nóvember 2013. Varaformaður safnaráðs frá 25. nóvember 2009.

Eiríkur Páll Jörundsson, forstöðumaður Víkurinnar, Sjóminjasafns Reykjavíkur. tilnefndur varafulltrúi Félags íslenskra safna og safnmanna frá 14. mars 2008 - 1. nóvember 2013.


Jenný Lind Egilsdóttir
, sveitarstjórnarmaður í Borgarbyggð, tilnefndur aðalfulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25. nóvember 2009 - 1. nóvember 2013.

Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, sveitarstjórnarmaður í Rangárþingi ytra, tilnefndur varafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30. júní 2011 - 1. nóvember 2013.

Starfandi framkvæmdastjóri safnaráðs er Ágústa Kristófersdóttir (agusta@safnarad.is),  Rakel Halldórsdóttir (rakel@safnarad.is) er í orlofi. Skrifstofa ráðsins er í húsakynnum Þjóðminjasafns Íslands, Suðurgötu 41, 101 Reykjavík.


Safnaráð 
Þjóðminjasafni Íslands
Suðurgötu 41 
101 Reykjavík
sími: 530 2216, 530 2200
bréfsími: 530 2231 
www.safnarad.is
safnarad@safnarad.is


Áður hafa setið í safnaráði:

Sveinn Kristinsson, tilnefndur aðalfulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 1. nóvember 2005 - 1. nóvember 2009.
Steinunn Ó. Kolbeinsdóttir, tilnefndur varafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 1. nóvember 2005 -  1. nóvember 2009.
AlmaDís Kristinsdóttir, verkefnastjóri fræðsludeildar Listasafns Reykjavíkur, tilnefndur og skipaður aðalfulltrúi Félags íslenskra safna og safnmanna frá 14. mars 2008 - 1. nóvember 2009.
Helga Bjarnadóttir, starfsmaður Náttúruminjasafns Íslands, tilnefndur varafulltrúi höfuðsafns á sviði náttúruminja frá 14. mars 2008 - 1. nóvember 2009.
Júlíana Gottskálksdóttir, safnstjóri Listasafns Einars Jónssonar, tilnefndur varafulltrúi höfuðsafns á sviði lista frá 1. nóvember 2005 - 1. nóvember 2009.
Karl Rúnar Þórsson, tilnefndur aðalfulltrúi Félags íslenskra safna og safnmanna frá 1. nóvember 2005 - 13. mars 2008. Varaformaður Safnaráðs frá 1. mars 2007 - 13. mars 2008. (Tilnefndur varafulltrúi félagsins 17. febrúar - 15. september 2005).

Ágústa Kristófersdóttir, sýningastjóri Þjóðminjasafns Íslands, tilnefndur varafulltrúi Félags íslenskra safna og safnmanna frá 1. nóvember 2005 - 13. mars 2008.
Jón Gunnar Ottósson, forstöðumaður Náttúrufræðistofnunar Íslands, lögbundinn aðalfulltrúi á sviði náttúruminja frá 15. september 2001 - 1. júní 2007.
Álfheiður Ingadóttir, útgáfustjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands, tilnefndur varafulltrúi höfuðsafns á sviði náttúruminja frá 15. september 2001 - 1. júní 2007.
Gísli Sverrir Árnason, tilnefndur aðalfulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga og varaformaður Safnaráðs 15. september 2001 - 15. september 2005.                                   
Jóhann Ásmundsson, tilnefndur aðalfulltrúi Félags íslenskra safna og safnmanna 3. apríl 2002 - 31. desember 2004.
Jónína A. Sanders, tilnefndur varafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga 15. september 2001 - 15. september 2005.
Karla Kristjánsdóttir, tilnefndur varafulltrúi höfuðsafns á sviði lista (Listasafns Íslands) 15. september 2001 - 15. september 2005.
Ólafur Kvaran, lögbundinn aðalfulltrúi Listasafns Íslands, höfuðsafns á sviði lista 15. september 2001 - 28. febrúar 2007. Formaður Safnaráðs frá 20. janúar 2004 - 28. febrúar 2007.
Sigrún Ásta Jónsdóttir, tilnefndur varafulltrúi Félags íslenskra safna og safnmanna 15. september 2001 - 16. febrúar 2005. Tilnefndur aðalfulltrúi Félags íslenskra safna og safnmanna 17. febrúar 2005 - 15. september 2005.

Sigurjón Baldur Hafsteinsson, tilnefndur aðalfulltrúi Félags íslenskra safna og safnmanna 15. september 2001 - 10. janúar 2002.



Starfandi framkvæmdastjóri safnaráðs á tímabilinu ágúst 2007 út febrúar 2008 (v. fæðingarorlofs) var Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir
Starfandi framkvæmdastjóri safnaráðs á tímabailinu apríl 2010 út ágúst 2011 (v. fæðingarorlofs og foreldraorlofs) var Ágústa Kristófersdóttir.