Ritstjórnarstefna fyrir sofn.is
Um sofn.is
Sofn.is (og söfn.is og museums.is) er upplýsingasíða sem safnaráð heldur úti til þess að gefa íslenskum söfnum, sýningum og setrum kost á að kynna starfsemi sína á sameiginlegum vettvangi á veraldarvefnum.
Markmið safnaráðs með heimasíðunni eru
- Að safna á einn stað helstu og nýjustu upplýsingum um íslensk söfn, sýningar og setur.
- Að auðvelda aðgengi fagfólks og almennings að íslenskum söfnum, sýningum og setrum og upplýsingum um starf þeirra og þjónustu.
- Að gera safnastarfið sýnilegra og vekja athygli á fjölbreytileika íslenskra safna, sýninga og setra.
Aðgangur að heimasíðunni
Söfn, setur og sýningar geta óskað eftir skráningu á síðuna og aðgangi að uppfærslu eigin upplýsinga þar.
Skráning á síðuna byggist á sýningu, ekki stofnun. Þannig getur eitt safn skráð fleiri en eina sýningu á síðunni.
Aðgangur er veittur eftir að umsóknaraðili hefur samþykkt ritstjórnarstefnuna og þar með skuldbundið sig til þess að hlýta henni.
Hvert safn/setur/sýning útbýr eigið lykilorð og sér sjálft um að uppfæra allar upplýsingar á eigin undirsíðu. Skráningin birtist á safnastarf.is eftir að safnaráð hefur samþykkt aðildina.
Hafið samband við skrifstofu safnaráðs ( safnarad@safnarad.is , s. 515 9605) fyrir nánari upplýsingar um nýskráningu/skráningu á safnastarf.is.
Kostnaður
Safnaráð greiðir kostnað við heimasíðuna og lénið en hvert safn/setur/sýning sér sjálft um að skrá inn upplýsingar um eigin starfsemi á undirsíðu sinni og uppfæra þær og stendur straum að kostnaði við þá vinnu.
Hlekkur á sofn.is á forsíðu
Mælst er til þess að þeir sem eiga aðild að sofn.is hafi á forsíðu eigin heimasíðu hlekk á sofn.is.
Uppfærðar upplýsingar
Mikilvægt er að upplýsingar aðildarsafnanna séu uppfærðar reglubundið. Dagsetning síðustu uppfærslu birtist á undirsíðu hvers safns/seturs/sýningar. Safnaráð mun reglulega fara yfir allar undirsíður og skoða hvort upplýsingar hafa verið uppfærðar. Verði misbrestur á þessu getur safnaráð lokað aðgangi viðkomandi safns/seturs/sýningar. Áður en til þess kemur mun safnaráð senda safninu/setrinu/sýningunni ábendingu um að þörf sé á að uppfæra upplýsingar á www.sofn.is
Leyfilegar upplýsingar á sofn.is
Sofn.is er upplýsingasíða um safnastarf í landinu og á einungis að þjóna þeim tilgangi. Þar skal ekki birta upplýsingar um vöru og þjónustu sem ekki tengjast beint starfsemi safns/sýningar/seturs eða aðrar upplýsingar ótengdar safnastarfinu. Upplýsingarnar skulu vera óhlutdrægar en ekki láta í ljós skoðun eða álit. Upplýsingarnar skulu vera hnitmiðaðar og almennar. Ljósmyndir skulu vera af byggingum, starfsemi eða þjónustu safnsins/setursins/sýningarinnar.




