Útflutningur menningarverðmæta

Safnaráð veitir leyfi til flutnings menningarverðmæta úr landi, skv. 2., 4. og 7. gr. laga nr. 105/2001 um flutning menningarverðmæta úr landi og skil menningarverðmæta til annarra landa og 7. gr. safnalaga nr. 106/2001

Skv. 2. gr. laga nr. 105/2001 er óheimilt að flytja úr landi forngripi, listgripi, skjöl, bækur, samgöngutæki og aðrar menningarminjar sem taldar eru upp í lögunum og uppfylla ákveðin skilyrði skv. þeim, nema formlegt leyfi frá Safnaráði skv. 3. mgr. laganna komi til. Sótt er um leyfi skriflega til Safnaráðs.

Náttúrufræðistofnun Íslands veitir slíkt leyfi ef um er aðræða útflutning náttúrugripa skv. 4. mgr. 15. gr. laga nr. 60/1992.





     « Smellið á undirsíðu fyrir upplýsingar um verklag við umsóknir um útflutning menningarverðmæta.